Opnunartími / neyðarvakt

Stofan er opin alla virka daga frá kl. 9-17 (á föstudögum lokum við kl. 16). Við erum í aðgerðum frá kl 9-12 og þá þarf að mæta með dýrin uppúr kl. 9. Að lokinni aðgerð fylgjumst við með dýrunum þar til þau jafna sig eftir svæfingu og eru tilbúin að fara heim. Þá er hringt í eigendur.

Eftir hádegi er stofutími þ.e. þá eru tímabókanir fyrir skoðanir og bólusetningar. Athugið að ekki er alltaf unnt að sinna þeim sem mæta án þess að eiga pantaðan tíma, nema um sé að ræða neyðartilfelli.

Vegna neyðartilfella utan opnunartíma vísum við á neyðarþjónustu Dýraspítalans í Garðabæ og Dýralæknamiðstöðvarinnar Grafaholti. Þessir tveir spítalar eru með samstarf um neyðarvakt og vaktsími er 863 3131 / 544 4544

Stofan

Dýralæknastofa Suðurnesja var stofnuð í byrjun árs 2004 og hóf þá starfsemi í litlu húsnæði við Hringbraut í Keflavík. Eftir að hafa búið við frekar þröngan kost í tæp 4 ár flutti stofan í Dýrasetrið sem var formlega vígt á ljósanótt 2008. Þá fórum við úr 60 fermetrum í 180 og óhætt er að segja að starfsemin hafi tekið stakkaskiptum við þá breytingu.

Dýrasetrið hýsir einnig K-9 dýrahótel, hundaskóla, gæludýraverslun auk skrifstofu Vetis.

Hjá okkur er m.a. boðið upp á eftirfarandi þjónustu

  • Almennar heilbrigðisskoðanir, þ.m.t. bólusetningu, ormahreinsun og örmerkingu, tryggingaskoðun og undirbúning vegna útflutnings
  • Almennar skurðaðgerðir (ófrjósemisaðgerðir og ýmsar mjúkvefsaðgerðir)
  • Röntgen
  • Ómskoðun (meðgöngusónar, kviðarholsómun og hjartaómun)
  • Rannsóknir á blóðsýnum (prótein, ensím og blóðkorntalning á staðnum, sértækar rannsóknar sendar ýmist á rannsóknarstofur hér heima eða erlendis)
  • Sýnatökur (vegna sýkinga, æxla eða annarra breytinga)
  • Tannhreinsun og tannaðgerðir
  • Fóðursölu
  • Vitjanir í hesthús og fjárhús á Suðurnesjum

Aðstaðan

Afgreiðsla / biðstofa / verslun
Í versluninni er lögð megináhersla á gott hunda- og kattafóður auk sjúkrafóðurs.
Einnig má nefna fóðurbætiefni, sjúkrasjampó og eyrnahreinsi.

 

Skoðunarherbergi
Skurðstofa

 

Aðgerðaaðstaða
Undirbúningur fyrir aðgerðir, gert að sárum, tannaðgerðir og -hreinsanir og ýmislegt fleira

 

Rannsóknaraðstaða

 

Röntgen

 

Dýraherbergi
Hér eru dýrin fyrir og eftir aðgerðir. Einnig höfum við einangrunarherbergi fyrir veik dýr.



Skipulag