Starfsfólkið

Hrund Hólm dýralæknir 
 

Útskrifaðist frá Dýralæknaháskólanum í Noregi árið 2001

Gerði lokaverkefni um algengi sjúkdómanna FIV og FeLV í köttum á Íslandi.

Hrund stofnaði Dýralæknastofu Suðurnesja ásamt Gísla Halldórssyni árið 2004.

Frá 2001-2005 starfaði hún hjá yfirdýralækni þar sem hún sá um innflutningsmál gæludýra ásamt fleiru. Stundaði afleysingar í fríum bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera.

Á norsku skógarkettina Tý og Nótt.

   

 

 

Helstu námskeið og erindi sem Hrund hefur sótt:

  • Ýmis námskeið á vegum Dýralæknafélags Íslands.
  • Erindi um HD/AD röntgen á vegum Dýralæknaháskólans í Noregi í ágúst 2006
  • Námskeið við Royal Veterinary College í London sumarið 2006: Online Logical Clinical Problem Solving
  • Námskeið í ómskoðun hunda og katta á vegum E-vet í Haderslev í Danmörku 7. og 8. september 2006.
  • Námskeið í sjúkdómum búrfugla á vegum Animalia ehf. 1.-4. mars 2008.
  • Námskeið í kviðarholsómun hunda og katta á vegum Eickemeyer á Odense Dyrehospital 13. sept. 2008
  • Online námskeið á vegum VetMedTeam "Thoracic Radiology" í september 2008
  • Online námskeið á vegum VetMedTeam "Abdominal Radiology í nóvember 2008
  • Erindi í húðsjúkdómum hunda á vegum Royal Canin á Íslandi í október 2008
  • Erindi í æxlunarfærasjúkdómum hunda á vegum Royal Canin á Íslandi í nóvember 2008
  • Námskeið í kviðarholsómun hunda og katta á vegum Eickemeyer á Dýrasetrinu þann 27. júní 2009
  • Námskeið í hjartaómum hunda og katta á vegum Eickemeyer á Dýrasetrinu þann 28. júní 2009
  • Námskeið í augnsjúkdómum hunda og katta á vegum Eickemeyer á Odense Dyrehospital 4. des. 2009
  • Námskeið í bæklunarlækningum (ortopedi) hunda og katta á vegum Norska dýralæknafélagsins í Tromsö 3.-5. febrúar 2011
 
____________________________________________________________________________________
   
Helga Sigríður Úlfarsdóttir dýralæknir
  Helga Sigríður er frá Vestfjörðum og útskrifaðist frá Dýralæknaháskólanum í Noregi árið 2009.

Gerði lokaverkefni um svefnlyf og verkun þeirra á hunda.

Frá útskrift og þar til hún hóf störf hjá okkur starfaði hún víða um landið bæði við smá- og stórdýralækningar.

Hóf störf á Dýralæknastofu Suðurnesja í nóvember 2010.

 
____________________________________________________________________________________
   
Eydís Ármannsdóttir
 

Eydís er í afgreiðslunni og sér um að allt gangi rétt og vel fyrir sig.

Hún hóf störf á Dýralæknastofunni í ágúst 2010.

Hún er mikil áhugamanneskja um dýr og á hundinn Gosa og kisuna Loppu.

 
____________________________________________________________________________________
 

 

Helgi Hólm fjármálastjóri

 

Helgi Hólm, kennari og fyrrum bankamaður með meiru er fjármálastjórinn okkar.

 
____________________________________________________________________________________