13. júní 2010. Nýtt hunda- og kattafóður til sölu á Dýralæknastofunni

Um nokkurra ára skeið hefur stofan verið umboðsaðili fyrir hunda- og kattafóður frá Eukanuba (og Iams). Þetta fóður hefur reynst afar vel en vegna verðhækkana m.a. sökum gengishruns hefur dregið töluvert úr sölu. Við höfum því ákveðið að hætta með Eukanuba/Iams og skipta yfir í þýskt gæðafóður sem kallast Belcando (fyrir hunda) og Leonardo (fyrir ketti).

Framleiðandinn er fjölskyldufyrirtæki í Þýskalandi sem kallast Bewital. Þar er megináherslan lögð á hráefnið og öll innihaldsefni eru af toppgæðum. Þó um sé að ræða innflutt gæðafóður er verðið mjög gott. Það kemur m.a. til af því að milliliðir eru fáir.

Við hlökkum til að prófa okkur áfram með þetta nýja fóður og vonandi taka viðskiptavinir okkar, tví- og ferfættir því vel! :)

Til að rýma fyrir Belcando verðum við með 40% afslátt af Eukanuba á meðan birgðir endast. Nú þegar eru sumar Eukanuba fóðurtegundir ófáanlegar en hér má sjá dæmi um það sem við erum enn með og tilboðsverðið:

 

Belcando vörulínan er byggð upp á annan hátt en Eukanuba, hér má sjá hvaða fóður hentar hverjum: