3. nóvember 2009. Vefurinn fær andlitslyftingu

Nú hefur ný heimasíða dýralæknastofunnar loksins litið dagsins ljós. Aðallega er um að ræða nýtt útlit en eitthvað er af nýju efni á vefnum. Ætlunin er að birta reglulega fréttir og greinar hér á vefnum. Einnig myndir úr starfinu og tilboð sem við erum með í versluninni okkar.

Hrund Hólm hannaði vefinn, hann er settur upp í Dreamweaver og vistaður hjá Ipower. Græni bakgrunnsliturinn á síðunni var tekinn úr lógóinu sem Ari Svavars hönnuður á heiðurinn af, en ákveðið var að láta hanna nýtt lógó haustið 2008 þegar stofan flutti sig um set.