10.
janúar 2012
Nýr
dýralæknir í hlutastarfi
Eftir að hafa
verið hjá okkur í rúmt ár er Helga Sigríður
dýralæknir horfin á vit nýrra ævintýra
og óvíst hvort hún komi aftur.
Í hennar
stað kemur Katla Harðardóttir dýralæknir
sem verður hjá okkur í hlutastarfi fram á vor.
Hún útskrifaðist frá dýralæknaháskólanum
í Búdapest árið 2008 og hefur starfað við
dýralækningar á höfuðborgarsvæðinu
síðan þá.
|