|
|
|
|||||||||
23. mars 2008: Afgreiðslutími lengdur Nú lengjum við afgreiðslutímann enn, ætlum að hafa opið frá 9-16 en verðum í aðgerðum fyrir hádegi en opið eins og venjulega kl. 12-16. Í raun er ekki um mikla breytingu að ræða fyrir okkur sem störfum á stofunni þar sem aðgerðirnar hafa verið framkvæmdar fyrir hádegi en þá hefur stofan ekki verið opin öðrum en þeim sem áttu pantaðan tíma. Sjá nánar hér.
27. september 2007: Furminator
20. ágúst 2007: Starfsmannabreytingar á dýralæknastofunni Nú er hún Arna Björg sem hefur starfað hjá okkur sl. 3 ár farin til náms. Í hennar stað kom Kristbjörg Jónsdóttir en hún er mikil áhugamanneskja um dýr.
13. nóvember 2006: Anna Ólöf komin til starfa Þann 23. október sl. kom Anna Ólöf Haraldsdóttir dýralæknir (Lóa) til starfa hjá Dýralæknastofu Suðurnesja í fjarveru Hrundar Hólm sem er nú í fæðingarorlofi. Anna Ólöf hefur víðtæka reynslu og undanfarin ár hefur hún starfað á Dýralæknastofunni Garðabæ. Við bjóðum hana velkomna til starfa.
13. október 2006: Dýralæknastofan gerist söluaðili fyrir Red Dingo vörur Nú er Dýralæknastofa Suðurnesja orðinn söluaðili fyrir Red Dingo. Um er að ræða mjög vandaðar vörur fyrir hunda og ketti; hálsólar, brjóstólar, tauma og merki. Ólarnar og taumarnar eru í ýmsum litum og munstrum og handföngin á taumunum eru bólstruð.
3. október 2006: Opnunartíminn aukinn! Mánudaginn 9. október nk. aukum við opnunartímann og verður hann sem hér segir: mánudaga og föstudaga frá kl. 14 til 18 og þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 12-16 (sjá nánar hér). Aðgerðir verða jafnan framkvæmdar fyrir opnunartíma og vitjunum í hesthús, fjárhús og heimahús verður sinnt eftir samkomulagi. Það er okkur mikið gleðiefni að geta loksins boðið upp á lengri opnunartíma og vonum við að þetta nýja fyrirkomulag henti dýraeigendum á svæðinu. Auglýsing í Víkurfréttum 5. október 2006
15. ágúst 2006: Námskeið á vegum Dýralæknafélags Íslands Þann 11. og 12 ágúst 2006 sóttu dýralæknarnir hjá DS námskeið sem haldin voru á vegum Dýralæknafélags Íslands í Sveinbjarnargerði í Eyjafirði. Annars vegar var um að ræða námskeið í hjartasjúkdómum hunda og katta (kennari: Jens Haggström, Svíþjóð) og hins vegar námskeið í tannlækningum hrossa (kennari: Nanna Luthersson, Danmörku)
13. ágúst 2006: Tækjakaup Dýralæknastofan hefur nýverið fjárfest í ýmsum tækjabúnaði með það að markmiði að geta boðið viðskiptavinum upp á betri og fjölbreyttari þjónustu. Meðal þeirra tækja sem hafa verið keypt og er verið að taka í notkun um þessar mundir eru sónar, blóðgreiningartæki og framköllunarvél fyrir röntgenfilmur.
Nokkrar myndir af viðskiptavinum stofunnar
Dýralæknastofa Suðurnesja hefur nú hafið sölu á Eukanuba hunda- og kattafóðri. Um er að ræða fóður sem framleitt er úr hágæða hráefni og nýtur vinsælda um allan heim. Sjá nánar um Eukanuba hérna. Fyrst um sinn verður 15% kynningarafsláttur af Eukanuba fóðri.
7. september 2005: Breyttur opnunartími Ágætu viðskiptavinir! Enn gerum við smávægilegar breytingar á opnunartíma eða öllu heldur tilfærslur. Við lengjum opnunartíma um 30 mínútur mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga en í stað þess verður stofan lokuð á þriðjudögum. Ástæðan er brottflutningur eigenda stofunnar frá Suðurnesjum. Nýr opnunartími tekur gildi 13. september nk.
18. apríl 2005: Breyttur opnunartími á miðvikudögum Frá og með miðvikudeginum 20. apríl verður stofan opin kl. 17:30-19:00 á miðvikudögum eins og hina daga vikunnar (lokað á föstudögum). Í ljós hefur komið að það hentar viðskiptavinum okkar best að koma með dýrin sín seinni part dags. Sjá nánar um opnunartíma.
28. desember 2004: Gæludýrin okkar og áramótin Áramótin geta verið kvíðvænleg fyrir gæludýr (gildir í raun um öll dýr) og eigendur þeirra þar sem flugeldar sem fylgja slíkum tímamótum valda oft og tíðum mikilli hræðslu hjá ferfætlingunum. Ráðlagt er að halda hundum og köttum innandyra þegar mestu lætin ganga yfir. Þá er skynsamlegt að hafa dýrin inni í herbergi með lokaðar dyr og glugga og jafnvel hafa tónlist á sem dempar að einhverju leyti hávaðann utandyra. Dýralæknastofan vill beina því til flugelda-áhugamanna að taka tillit til dýranna okkar þegar sprengt er.
4. október 2004: Nýtt útlit á www.dyri.com Nú hefur vefur Dýralæknastofunnar verið uppfærður. Hér er að finna almennar upplýsingar um fyrirtækið, þjónustuna sem þar er veitt og ýmislegt fleira. Fleiri greinum um dýr og dýrasjúkdóma (sjá "fróðleikur") verða smátt og smátt settar inn á vefinn. Fyrirspurnir og tillögur um efni á vefinn er hægt að senda til hrund@dyri.com.
8. september 2004: Smitsjúkdómur í hvolpum Ný fréttatilkynning frá embætti yfirdýralæknis föstudaginn 10. september Ástæða er til að taka undir ráðleggingar yfirdýralæknis um að eigendur sjái til þess að hundarnir þeirra séu bólusettir gegn smáveirusótt (parvo) á réttan hátt. Í flestum tilfellum eru hvolpar bólusettir fyrst 8 vikna, þá 12 vikna og síðan með eins eða tveggja ára millibili. Í einhverjum tilfellum þar sem smitálag er mikið (t.d. ef um er að ræða heimili með marga hunda) er þörf á að hefja bólusetningu við 6 vikna aldur. Þegar farið er með hunda á sýningar eða á hótel er mjög mikilvægt að þeir séu bólusettir með góðum fyrirvara, að minnsta kosti 2-3ja vikna, en 30 daga fyrirvari er æskilegur. Eftir bólusetningu tekur það líkamann nokkrar vikur að byggja upp mótefni gegn viðkomandi sjúkdómi. Á því tímabili er mikið álag á ónæmiskerfinu og dýrið þá móttækilegra fyrir sýkingum og þar með talið sýkingum með þeim veirum/bakteríum sem það var bólusett fyrir. Sjá grein um ónæmiskerfi ungdýra og bólusetningar
6. apríl 2004: Gleðilega páska Dýralæknastofa Suðurnesja óskar öllum viðskiptavinum gleðilegra páska. Athugið að súkkulaði í stórum skömmtum getur verið skaðlegt fyrir dýr. Það sama gildir um feitar sósur og kjöt. Farið líka varlega í að gefa hundunum bein, það er alltaf hætta á að beinflísar festist í hálsi eða meltingarfærum.
29. mars 2004: Athugið breyttan opnunartíma frá 1. apríl
10. mars 2004: Tiger cubs í heimsókn Í gær fengum við heimsókn ofan af velli - þar voru á ferð skátadrengir sem vildu fá örlitla innsýn í dýralæknastarfið.
2. mars 2004: Kalkskortur hjá nýgotnum tíkum Lesa grein.
4. febrúar 2004:Bólusetning gegn smáveirusótt (parvo) með lifandi bóluefni Á seinni hluta ársins 2003 var byrjað að nota lifandi bóluefni gegn smáveirusótt (parvo) á Íslandi en víðast hvar í heiminum hefur notkun lifandi parvo-bóluefnis tíðkast um langt skeið. Þar sem bóluefnið sem notað hefur verið hérlendis í fjölda ára, er ekki framleitt lengur, var notkun á lifandi bóluefni heimiluð í fyrra. Lifandi bóluefni hegðar sér á ýmsan hátt öðruvísi en deytt bóluefni og kallar m.a. fram sterkari mótefnasvörun og veitir þar með betri vörn. Eins og gildir um allar bólusetningar fylgir notkun þess hætta á ofnæmisviðbrögðum. Helstu einkenni eru slappleiki og niðurgangur og í sumum tilfellum bólga og þroti (í andliti). Í langflestum tilfellum er um að ræða skammvinn og hættulítil einkenni en einhverja hunda þarf að meðhöndla. Því er mikilvægt að vel sé fylgst með hundinum fyrstu klukkutímana eftir bólusetningu.
2. febrúar 2004: Við þökkum öllum, bæði mönnum og dýrum, sem litu við á laugardaginn.
28. janúar 2004:OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 31. JANÚAR KL. 14-18 Nú er komið að því - Dýralæknastofa Suðurnesja opnar formlega laugardaginn 31. janúar. Þá verður opið hús frá kl. 14 til 18 og eru allir velkomnir. Opnunartilboð verður á Hill's gæludýrafóðri. Ath! Stofan verður lokuð föstudaginn 30. janúar.
22. janúar 2004 Framkvæmdum fer nú senn að ljúka og húsnæðið við Hringbraut 92a verður tekið í notkun á næstu dögum. Formleg opnun verður laugardaginn 30. janúar og þá verður opið hús fyrir gæludýr og eigendur þeirra (og alla aðra sem hafa áhuga). Auglýsing verður birt í Víkurfréttum fimmtudaginn 29. janúar nk. 2. janúar 2004: Húsnæði tekið á leigu Húsnæði við Hringbraut 92a í Keflavík hefur verið tekið á leigu. Nú þegar hefur verið hafist handa við að innrétta og standsetja húsnæðið og gert er ráð fyrir að dýralæknastofan opni í seinni hluta janúar. 13. desember 2003: Dýralæknastofa Suðurnesja ehf. stofnað Nú í haust var fyrirtækið Dýralæknastofa Suðurnesja ehf. stofnað með það að markmiði að þjóna dýraeigendum á Suðurnesjum. Veitt verður almenn dýralæknaþjónusta auk þess sem fóður og aðrar vörur fyrir dýr verða boðnar til sölu. Leit að hentugu leiguhúsnæði stendur nú yfir en þar til það finnst verður boðið upp á vitjanir í heimahús og hesthús. Vefurinn er enn í smíðum - meira efni verður sett upp á næstu vikum.
|
||||||||||