FRÓÐLEIKUR
Flugeldaótti
Aldrei er góð vísa of oft kveðin og þar
sem líður að áramótunum með tilheyrandi
flugeldum er ástæða til að rifja upp helstu leiðbeiningar
til dýraeigenda vegna ótta við flugelda. Ótti
við hávær hljóð eins og flugelda háir
fjölda hunda og katta. Eðlilegt er að dýrin verði
vör um sig í miklum hávaða en sum verða ofsahrædd,
titra og skjálfa, verða áhugalaus um mat og leikföng
og missa jafnvel þvag. Flest reyna að leita skjóls
undir húsgögnum eða inni í skápum en dæmi
eru um að hundar hafi nagað sig í gegnum veggi af ótta
við hávaða.
Almennar ráðleggingar
Ýmislegt er til ráða til að draga úr óttanum.
Dýrunum skal haldið innandyra og best er að útbúa
aðstöðu í einhverju herbergi þar sem þau
þekkja til. Þar skal draga fyrir glugga og hafa ljósið
kveikt og einhverja tónlist í gangi þar sem það
getur dregið úr hávaðanum sem berst inn. Þetta
á jafnt við um hunda og ketti en kettirnir eru yfirleitt
fljótir að finna sér felustað sem hentar þeim.
Ráðlegt er að tala rólega við dýrin
en ekki vorkenna þeim um of. Dýr sem verða mjög
hrædd má ekki skilja eftir einsömul. Hvolpum og kettlingum
sem eru að upplifa sín fyrstu áramót þarf
einnig að sýna sérstaka aðgát. Hræðsla
við hávaða eykst oft eftir því sem dýrin
eldast.
Notkun róandi lyfja
Það hefur færst í vöxt að gefa hundum
róandi lyf á áramótunum og þrettándanum.
Þó það sé góð lausn fyrir einhverja
hunda er það ekki æskilegt í öllum tilfellum
og alls ekki á fyrstu áramótunum sem dýrin
upplifa. Verkun róandi lyfja er mismunandi eftir einstaklingum
og fer m.a. eftir aldri, líkamlegu ástandi og skapgerð.
Ekki hafa öll róandi lyf slævandi áhrif á
skynfæri þannig að þrátt fyrir að hundurinn
virðist slaka á getur hann upplifað óttann en
ekki tjáð hann vegna lyfjanna. Aukaverkanir geta fylgt notkun
róandi lyfja og aldrei má skilja dýr eftir ein
hafi þeim verið gefin slík lyf. Ávallt skal
ráðfæra sig við dýralækni áður
en dýrum er gefið róandi lyf.
Lyktarhormón
Lyktarhormón eða svokölluð ferómón
(Feliway / D.A.P.) hafa verið notuð með góðum
árangri til að draga úr ótta af ýmsum
orsökum hjá hundum og köttum. Þessi efni eru
sambærileg annars vegar þeim lyktarefnum sem mjólkandi
tík myndar til að sefa hvolpa sína og hins vegar lyktarefnum
sem kettir skilja eftir sig t.d. á eigendum sínum þegar
þeir nudda andlitinu upp við þá sem er tákn
um vellíðan. Lyktarhormónin eru á vökvaformi
í íláti sem er stungið í samband í
því herbergi sem hundurinn eða kötturinn hefur
aðstöðu. Hvert hylki dugar í um 4 vikur en nokkra
daga tekur að metta herbergið og því þarf
að hefja notkun á lyktarhormónunum með einnar
til tveggja vikna fyrirvara.
Við flugeldaótta er semsagt ýmislegt til ráða
og gott er að huga að ráðstöfunum með nokkrum
fyrirvara. Dagarnir skömmu fyrir áramót geta gefið
vísbendingar um hvernig dýrin munu bregðast við
þar sem sumir geta ekki beðið eftir gamlársdegi
með að byrja að sprengja. Það allra mikilvægasta
er þó að sjá til þess að dýrin
séu í öruggu umhverfi og njóti stuðnings
eigenda sinna.
|