FRÓÐLEIKUR
Fóðrun gæludýra
Það er ýmislegt sem hafa þarf í huga
þegar kemur að fóðrun gæludýra. Mikill
fjöldi tegunda hunda- og kattafóðurs er á markaðnum
og hægt er að velja á milli þurrfóðurs,
dósamats og mismunandi innihalds- og bragðefna, svo eitthvað
sé nefnt og skal því engan undra að valið
geti verið erfitt. Gæði þessa tilbúna fóðurs
eru þó afar misjöfn og byggjast m.a. á uppruna
hráefnanna og samsetningu þeirra. Undanfarið hafa vinsældir
hráfæðis farið vaxandi en það sjá
eigendur sjálfir um að útbúa. Í þessari
grein mun ég taka fyrir nokkur atriði sem varða gæludýrafóður.
Innihaldslýsingar
Innihaldslýsingar á gæludýrafóðri
veita yfirleitt nokkuð góðar vísbendingar um gæði
fóðursins. Í hráefnalistanum er fyrst talið
það hráefni sem hlutfallslega mest er af og svo koll
af kolli. Síðan er næringargildi fóðursins
gerð skil, þ.e. hlutfall próteins, kolvetnis, fitu
o.fl.
Nauðsynleg næringarefni
Kettir eru kjötætur en hundar eru í raun alætur.
Öll dýr þurfa prótein, kolvetni, fitu, vatn,
vítamín og steinefni til að vaxa, þroskast og
viðhalda heilbrigði. Prótein eru samsett úr amínósýrum;
efnasamböndum sem líkaminn notar til að viðhalda
eðlilegri starfsemi. Sumar amínósýrur getur
líkaminn framleitt sjálfur en aðrar ekki og er því
lífsnauðsynlegt að fá þær úr
fæðinu, þ.e. úr dýra- eða plönturíkinu.
Gæði próteinanna sem hundar og kettir fá úr
fóðri veltur á samsetningu þeirra, þ.e.
hvaða amínósýrur þau innihalda. Hreint
kjöt er besti próteingjafinn, svo má nefna kjötmjöl
(meat meal), þar á eftir kjöt- og beinamjöl og
að lokum aukaafurðir/innmat (byproducts). Ef fóðrið
inniheldur hlutfallslega mest af kornmeti (corn, cereals) má
ætla að próteinið sé af lakari gæðum.
Alla jafna má segja að kjúklingakjöt sé
einn besti próteingjafinn fyrir hunda og ketti en það
skiptir sem sagt miklu máli hvort um er að ræða
kjöt, kjöt- og beinamjöl eða aukaafurðir.
Þurrfóður eða dósamatur?
Þegar kemur að því að velja á milli
þurrfóðurs og dósamats er vert að hafa nokkur
atriði í huga. Þurrfóður er yfirleitt ódýrara,
það þolir að standa í einhvern tíma
í matardallinum og það er betra fyrir tennurnar en
dósamaturinn. En það getur verið erfitt að
fá suma hunda og sérstaklega ketti til að éta
þurrmatinn. Blautmatur í álpokum (skammtastærðum)
nýtur mikilla vinsælda en slíkur matur er yfirleitt
ekki hugsaður sem heilfóður heldur sem viðbót.
Aukabitar
Allir hundaeigendur (og sumir kattaeigendur) kannast við biðjandi
augu við matarborðið sem getur verið afar erfitt að
hafna. Margir falla í þá gryfju að gefa heimilisdýrinu
eitthvað smávegis að narta í þegar fjölskyldan
borðar kvöldmatinn. Sömu eigendur kvarta oft yfir því
að dýrin vilji alls ekki fóðrið sitt, sama
hvers konar fóður er í boði. Þá er
mikilvægt að átta sig á að aukabitar geta
verið ansi orkuríkir og í mörgum tilfellum slagað
hátt í orkuþörf dýranna. Sem dæmi
má nefna smáhund sem vegur 2,5 kg. Orkuþörf
hans er u.þ.b. 200 kcal á dag sem er á við eina
(stóra) pylsu. Mun skynsamlegra er að nota gott hundakex
til að verðlauna með og fyrir kettina er alltaf gott að
eiga rækjur í frystinum fyrir sérstök tilefni.
|