FRÓÐLEIKUR
Æxlunarfræði hunda
Kynþroski
Algengast er að tíkur verði kynþroska og lóði
í fyrsta sinn á aldrinum 5 til 12 mánaða. Nokkur
munur er á milli hundategunda, þ.e. því stærri
tegund því seinna verða tíkurnar kynþroska.
Tíkur af mjög stórum tegundum byrja jafnvel ekki
að lóða fyrr en tveggja ára gamlar. Meðalaldur
karlhunda þegar þeir ná kynþroska er 5 mánuðir.
Ekki er æskilegt að para tík yngri en tveggja ára
og alls ekki á fyrsta lóðaríi.
Lóðarí
Flestar tíkur lóða tvisvar á ári eða
með 5-8 mánaða millibili. Lóðarí hefst
með blæðingum sem standa að jafnaði í 5-9
daga. Ytri kynfæri tíkarinnar bólgna og rakkar sýna
henni áhuga en hún vill ekkert með þá
hafa. Að loknum blæðingum tekur við tímabil
þar sem tíkin stendur undir hundinum og egglos á
sér stað og frjóvgun getur orðið. Þetta
tímabil stendur einnig í um 5-9 daga. Blæðing
er mismikil og tíkurnar eru misduglegar við að þrífa
sig. Í sumum tilfellum sérstaklega ef um er að ræða
mjög unga eða frekar gamla tík getur lóðarí
verið nánast einkennalaust og farið framhjá eigandanum.
Ef ráðgert er að para tíkina er stundum nauðsynlegt
að vita hvar hún er stödd í ferlinu. Þá
er hægt að láta taka frumustrok úr leggöngum
tíkarinnar og dýralæknirinn metur út frá
því hvenær best er að para hana. Einnig er hægt
að mæla magn prógesteróns (meðgönguhormónsins)
til að segja til um hvenær egglosið verður.

Ófrjósemisaðgerðir
Til þess að koma í veg fyrir að tík fari
á lóðarí og geti orðið hvolpafull er
hægt að gefa henni ófrjósemislyf reglulega eða
gera hana ófrjóa með skurðaðgerð. Lyfin
sem um ræðir eru hormónalyf á stungulyfsformi
sem gefa þarf með 5 mánaða millibili eins lengi
og áhrifa er óskað. Í ófrjósemisaðgerð
felst að eggjastokkarnir eru fjarlægðir og í sumum
tilfellum einnig legið. Í þessu samhengi skal einnig
minnst á krabbamein í júgra en það er
algeng tegund krabbameins hjá hundum. Hormónar hafa mikla
þýðingu fyrir myndun júguræxla hjá
hundum og sýnt hefur verið fram á að notkun ófrjósemislyfja
eykur hættuna á téðu krabbameini. Aftur á
móti dregur ófrjósemisaðgerð úr
líkum á myndun júguræxla. Áhrifin
eru meiri því fyrr sem aðgerðin er framkvæmd.
Hvað þetta varðar er því best að ófrjósemisaðgerð
sé framkvæmd áður en tíkin lóðar
í fyrsta sinn. Ekki eru vísbendingar um að ófrjósemisaðgerðir
hafi neikvæð áhrif á atferli eða andlega
líðan tíka. Né heldur er það talið
nauðsynlegt fyrir tíkur að eignast hvolpa einu sinni.
Meðganga
Eðlileg meðgöngulengd hjá tíkum er rétt
um tveir mánuðir, nánar tiltekið 63 dagar plús/mínus
tveir dagar og er þá talið frá pörun (fyrstu
pörun ef tíkin er pöruð oftar en einu sinni). Fljótlega
eftir árangursríka pörun geta sumar tíkur
farið að sýna breytta hegðun, þær verða
rólegri og sækja meira í eigendur sína og
vilja síður leika sér. Eðlilegt er að tíkurnar
hafi einhverja útferð úr sköpum (gráleitt
slím) alla meðgönguna en ef litur eða lykt af útferðinni
breytist er hugsanlegt að um sýkingu sé að ræða.
Júgur og spenar fara að stækka 2-3 vikum eftir pörun
og mjólkurframleiðsla getur hafist allt að viku fyrir
got. Sumar tíkur kasta eitthvað upp á tímabilinu.
Hárlos getur aukist mikið. Matarlystin eykst yfirleitt en
gæta þarf þess að veita hvolpafullum tíkum
ekki frjálsan aðgang að fóðri þar sem
þær geta auðveldlega fitnað um of. Ekki er þörf
á að auka magn fóðurs fyrr en um mánuði
eftir pörun. Auk þess er hægt að skipta yfir í
hvolpafóður þar sem það er bæði
prótein- og fituríkara en fóður fyrir fullorðna
hunda. Í lok meðgöngunnar skal gefa tíkinni fleiri
máltíðir á dag en minna í einu.
Gerviólétta
Svokölluð gerviólétta er ástand sem margar
tíkur ganga í gegnum. Þær sýna einkenni
þess að vera hvolpafullar, fá aukna matarlyst, verða
kviðmeiri, júgrið stækkar og mjólkurframleiðsla
fer jafnvel í gang. Sumar virðast undirbúa got, búa
sér til hreiður og verða eirðarlausar og taka að
sér ýmsa hluti (t.d. bangsa) 5-10 vikum eftir lóðarí.
Þetta skýrist að hluta til af því að
styrkur meðgönguhormónsins er mjög hár í
blóði tíka eftir lóðarí, í
sumum tilfellum jafn hár og hjá tíkum sem eru hvolpafullar.
Hætt er við því að tík sem verður
gerviólétt einu sinni, verði það einnig
á næsta lóðaríi.
Er tíkin hvolpafull?
Ef grunur leikur á um að tík sé hvolpafull
er æskilegt að ganga úr skugga um það til
að gera ráðstafanir vegna tíkurinnar sjálfrar
og væntanlegra hvolpa. Ef um slysapörun er að ræða
getur þurft að framkalla fósturlát en hægt
er að gera það með lyfjum fram til 45. dags meðgöngu.
Þó ber að athuga að slíkri aðgerð
geta fylgt aukaverkanir. Dýralæknar geta greint meðgöngu
hjá tíkum með nokkrum aðferðum en ekki fyrr
en í fyrsta lagi þremur vikum eftir pörun. Þó
geta tíkur sem eru órólegar eða í góðum
holdum gert slíkar skoðanir erfiðar. Þreifing á
kvið er einföld aðferð sem dugar í sumum tilfellum.
Ómskoðun (sónar) er hægt að framkvæma
rúmlega þremur vikum eftir pörun og hægt er
að greina hjartslátt eftir 32. dag meðgöngu. Ómskoðun
er ekki hentug aðferð við að telja fóstur. Röntgenmyndataka
er einnig notuð en helst til að staðfesta meðgöngu
og telja fóstur eftir dag 45.
Got
Þegar líður að goti þarf að huga að
undirbúningi fyrir komu hvolpanna. Í herberginu sem ráðlagt
er að tíkin gjóti skal útbúa gotkassa
(eða afstúkað rými) með góðum fyrirvara
og leyfa tíkinni að venjast honum. Kassinn (rýmið)
skal vera það stór að tíkin nái að
teygja úr sér og snúa sér við og hliðarnar
ekki það háar að hún eigi í vandræðum
með að komast yfir þær. Gott er að einangra
gólfið með dagblaðspappír eða teppum sem
draga í sig vökva.
Síðustu dagana fyrir got verða breytingar á líkamshita
tíkurinnar. Eðlilegur líkamshiti hunda er í
kringum 38,5°C en á þessum tíma fer hitinn að
lækka og u.þ.b. hálfum til einum sólarhring
áður en fyrsti hvolpurinn fæðist getur hitinn farið
niður fyrir 37°C. Því getur verið gott að
byrja að mæla tíkina tvisvar á dag 3-4 dögum
fyrir áætlað got. Hitinn hækkar svo aftur áður
en fyrsti hvolpurinn fæðist.
Hjá hundum skiptist fæðingin í þrjú
stig eins og hjá öðrum spendýrum; útvíkkunartímabil,
rembingstímabil og fæðing fylgjunnar. Þegar hríðar
byrja (og leghálsinn fer að opnast) verður tíkin
óróleg og eirðarlaus og andar hratt. Hún hefur
litla matarlyst en getur þurft að pissa og slím getur
lekið frá sköpum. Misjafnt er hversu langan tíma
útvíkkunartímabilið tekur, það geta
verið nokkrar klukkustundir allt upp í einn og hálfan
sólarhring án þess að nokkuð sé óeðlilegt.
Þegar sést í fyrsta fósturbelginn má
segja að rembingstímabilið sé hafið. Tíkin
hefur enn hríðar og rembist samhliða til að ýta
hvolpunum út. Hvolparnir geta komið út með höfuðið
á undan eða öfugt, hvoru tveggja er eðlilegt. Þeir
fæðast ýmist í belgnum eða ekki en oftast
springur belgurinn í fæðingarveginum. Hvolparnir geta
komið með nokkurra mínútna millibili eða það
geta liðið nokkrir klukkutímar á milli, sérstaklega
þegar líða tekur á. Hver hvolpur hefur sína
fylgju sem fæðist fljótt á eftir hvolpinum en
tíkin étur gjarnan fylgjurnar. Ágætt er að
leyfa henni að éta tvær þrjár til að
byrja með en fjarlægja þær síðan lúmskt
til að koma í veg fyrir að hún fái niðurgang.
Flestar tíkur eru duglegar að kara hvolpana og bíta
naflastrenginn í sundur en stundum þarf að aðstoða
þær og þá skal binda naflastrenginn með
bómullartvinna u.þ.b. 1 cm frá naflanum. Einnig
getur reynst nauðsynlegt að hreinsa slím og vökva
frá vitum hvolpanna.
Mikilvægt er að það sé rólegt á
meðan á fæðingunni stendur og að ekki of margir
séu að snúast í kringum tíkina. Hún
skal hughreyst með rólegri röddu en ekki skal grípa
inn í fæðinguna nema ástæða sé
til. Gott er að hjálpa henni með hvolpana og koma þeim
á spena en leyfa henni annars að sjá um þetta
að mestu leyti sjálf.
|