Lög og reglur sem varða dýr

Samþykkt um hundahald á Suðurnesjum

Skylt er að skrá hund hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja á þar til gerðum eyðublöðum, eigi síðar en mánuði eftir að hann er tekinn inn á heimili. Hvolpa skal skrá fyrir þriggja mánaða aldur. Vottorð dýralæknis um að hundur hafi verið ormahreinsaður og örmerktur skulu fylgja umsókn um skráningu. Ef hundur dvelst tímabundið í sveitarfélaginu þarf að skrá hann til bráðabirgða en slík skráning gildir til 6 mánaða í senn.

Við skráningu hundsins fær hann merki þar sem fram kemur að hann sé örmerktur. Merki þetta ber að setja á hálsól hundsins. Greiða þarf sérstakt gjald fyrir hundinn árlega, gjald þetta er sett skv. sérstakri gjaldskrá í hverju sveitarfélagi og á að standa undir kostnaði við hundaeftirlit og skráningu. Gjalddagi leyfisgjalds er 1. mars og eindagi 1. mai ár hvert

Hundaeiganda ber að tilkynna Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja um aðsetursskipti og ef hundurinn drepst. Þannig má komast hjá óþarfa innheimtu skráningargjalda og vottorða, auk þess sem eiganda er skylt að greiða af hundi sínum meðan að hann er á skrá í bæjar/sveitarfélaginu.

Tekið af vefsíðu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja
Samþykkt um hundahald á Suðurnesjum

Samþykkt um kattahald á Suðurnesjum

Við skráningu kattar skal eigandi/umráðamaður framvísa vottorði frá dýralækni um örmerkingu eða húðflúrmerkingu og spóluormahreinsun kattarins. Skráningargjald er kr. 15.000 fyrir hvern kött. Ekki er innheimt árgjald fyrir ketti.

Starfsmenn á vegum Heilbrigðiseftirlitsins fanga ketti í fellibúr. Löglega skráðum köttum verður sleppt aftur en óskráðir kettir verða færðir í dýrageymslu. Hafi þeirra ekki verið vitjað innan 7 daga verður þeim ráðstafað til nýrra eigenda, þeir seldir fyrir áföllnum kostnaði eða aflífaðir. Eigendur sem gefa sig fram skulu greiða skráningargjald og áfallinn kostnað.

Tekið af vefsíðu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja
Samþykkt um kattahald
Gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja vegna kattahalds

Lög og reglur er varða dýravernd

Lög nr. 15/1994 um dýravernd.

Leiki grunur á að meðferð á dýrum brjóti gegn dýraverndarlögum ber þeim sem verða þess varir að tilkynna það Umhverfisstofnun, héraðsdýralækni eða lögreglu í viðkomandi umdæmi.

Reglugerð nr. 279/2002 um dýratilraunir
Reglugerð nr. 900/2001 um breyting á reglugerð nr. 499/1997 um dýrahald í atvinnuskyni
Reglugerð nr. 526/2001 um bann við aðgerðum á hundum og köttum sem framkvæmdar eru án læknisfræðilegra ástæðna.
Reglugerð nr. 499/1997 um dýrahald í atvinnuskyni.
Reglugerð nr. 635/1996 um notkun lyfja og meðferð á sýningar- og keppnishrossum.

Lög og reglur er varða dýrasjúkdóma

Lög nr. 19/1997 Sóttvarnarlög
Lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim (ásamt síðari breytingum)

Reglugerð nr. 665/2001 um viðbrögð við smitsjúkdómum
Reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti (ath. ákvæði um spóluormahreinsun katta og tíka)
Reglugerð nr. 837/1999 um ormahreinsun
Reglugerð nr. 290/1980
um varnir gegn hundaæði

Lög og reglur sem varða dýralækna

Lög nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.

Lög og reglur er varða lyf og lyfjasölu

Lög nr. 93/1994 Lyfjalög með breytingum
Lög nr. 65/1974 um ávana og fíkniefni
Lög nr. 30/1963 Lyfsölulög

Reglugerð 490/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld lyf
Reglugerð 111/2001 um gerð lyfseðla og ávísun lyfja
Reglugerð 91/2001 um afgreiðslu lyfseðla, áritun og afhendingu lyfja
Reglugerð nr. 539/2000 um heimildir dýralækna til að ávísa lyfjum

Lög og reglur er varða inn- og útflutningur dýra

Innflutningur dýra

Lög nr. 54/1990 um innflutning dýra ásamt síðari breytingum nr. 56/1992 og nr. 40/1996
Reglugerð nr. 431/2003 um innflutning gæludýra og hundasæðis
Reglugerð nr. 432/2003 um einangrunarstöðvar og sóttkvíar fyrir gæludýr
Reglugerð nr. 859/2002 um innflutning loðdýra

Nánari upplýsingar um innflutning gæludýra er að finna hér

Útflutningur dýra

Lög nr. 55/2002 um útflutning hrossa
Reglugerð nr. 677/2002 um breytingu á reglugerð um útflutning hrossa nr. 449/2002
Reglugerð nr. 449/2002 um útflutning hrossa

Nánari upplýsingar um útflutning gæludýra er að finna hér

Þessi listi er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar má m.a. fá á heimasíðu embættis yfirdýralæknis.