Fróðleikur
um dýr og dýrasjúkdóma
 |
Kalkskortur
hjá tíkum með hvolpa |
Kalkskortur hjá
nýgotnum tíkum (og læðum) er lífshættulegt
ástand sem getur komið fram 1-4 vikum eftir got. Yfirleitt
er um að ræða tíkur af litlum hundategundum með
marga hvolpa. Í einstaka tilfellum kemur kalkskortur fram í
lok meðgöngu. Á fyrstu vikum eftir got þegar mjólkurframleiðsla
tíkarinnar eykst, er þörfin á kalki mjög
mikil, ekki síst ef afkvæmin eru mörg. Í sumum
tilvikum fær móðirin ekki nægilega mikið
kalk úr fæðunni og því fer að ganga
of mikið á hennar eigin birgðir sem eru nauðsynlegar
fyrir eðlilega líkamsstarfsemi.
Einkenni kalkskorts eru hraður
andardráttur, eirðarleysi, vöðvakrampar og stífleiki
í vöðvum (breytt göngulag). Í alvarlegum
tilfellum koma fram krampaflog. Um leið og einkenni koma fram er
nauðsynlegt að veita meðhöndlun sem felst í
að kalk er gefið í æð og undir húð.
Taka þarf hvolpana frá tíkinni í 12-24 tíma
og fóðra þá með mjólkurblöndu
á meðan.
Til þess að koma
í veg fyrir kalkskort af þessu tagi er mikilvægt
að tíkin fái gott fóður (hvolpafóður/meðgöngufóður)
á meðgöngu og á meðan hún mjólkar.
Hún þarf að hafa frían aðgang að fóðri
og vatni. Ekki er mælt með að gefa tíkum kalktöflur
á meðgöngunni til að koma í veg fyrir kalkskort.
Sé það gert getur það í raun stuðlað
að kalkskorti þar sem líkaminn er verr í stakk
búinn til að framleiða kalk fyrir mjólkurframleiðsluna.
Afar mikilvægt er að jafnvægið milli kalks og annarra
steinefna í fæðunni riðlist ekki þar sem
það hefur áhrif á hversu vel líkaminn
getur nýtt steinefnin.
Hafi tík einu sinni
fengið kalkskort eru þónokkrar líkur á
að það gerist aftur við næsta got og þá
má athuga að gefa tíkinni kalk þegar mjólkuframleiðsla
er í hámarki (1.-3. vika eftir got), en það
ber að gera í samráði við dýralækni.
|