Fróðleikur
um dýr og dýrasjúkdóma
 |
Hjartasjúkdómar
í hundum og köttum |
Hjartasjúkdómar
eru algeng ástæða þess að gæludýr
deyji eða séu aflífuð fyrir aldur fram. Með
lyfjameðhömdlun er þó hægt að lengja
líf og bæta lífsgæði hjartveikra dýra.
Minnkað þol og öndunarerfiðleikar geta verið
vísbending um að hjartað starfi ekki eðlilega. Hér
verður fjallað lítillega um hjartað og helstu hjartasjúkdóma
í hundum og köttum.
Hjartað samanstendur
af fjórum hólfum, hægri gátt og slegli og
vinstri gátt og slegli. Súrefnissnautt blóð
kemur frá öllum hlutum líkamans til hægri gáttar
og niður í hægra hvolf. Þaðan er blóðinu
dælt í gegnum lungnaslaæðina til lungna þar
sem það losar sig við koltvísýring og tekur
til sín súrefni. Súrefnisríkt blóð
kemur svo frá lungunum til vinstri gáttar og slegils og
er þaðan dælt út í ósæðina
og færir öllum vefjum og líffærum súrefni.

Hjartasjúkdómar
í gæludýrum eru annað hvort meðfæddir
eða áunnir. Sem dæmi um meðfædda
hjartasjúkdóma má nefna opna fósturæð,
þ.e. op á milli ósæðar og lungnaslagæðar
(algengasti meðfæddi hjartagallinn í hundum) og op
á milli slegla (algengasti meðfæddi hjartagallinn í
köttum). Það veltur á því hversu
alvarlegur gallinn er hvort hann uppgötvast við almenna skoðun
eða hvort og hvenær sjúkdómseinkenni koma fram.
Dýr sem fæðast með alvarlega hjartagalla þrífast
illa, þyngjast hægt og hafa lítið þol.
Úrræði eru fá en í sumum tilfellum er
hægt að meðhöndla einkennin með lyfjum. Hjartaaðgerðir
á dýrum hafa hingað til ekki verið framkvæmdar
á Íslandi.
Áunnir hjartasjúkdómar
eru mun algengari en meðfæddir. Tíðnin er afar
misjöfn eftir hunda- og kattategundum. Sem dæmi um áunna
hjartasjúkdóma má nefna hrörnun í hjartalokum,
ofþykknun á hjartavöðva og hjartavöðvaslen.
Hjartalokuhrörnun
er einn algengasti áunni hjartasjúkdómurinn í
hundum og finnst hann aðallega í smáhundum og sér
í lagi hjá Cavalier King Charles Spaniel. Sjúkdómurinn
greinist oftar í rökkum en tíkum. Orsökin er
óþekkt en sýnt hefur verið fram á arfgengi.
Um er að ræða þykknun og afmyndun á hjartalokunum
á milli vinstri gáttar og slegils sem veldur því
að hluti blóðsins rennur til baka úr slegli í
gátt. Sjúkdómurinn er langvinnur og einkenni koma
yfirleitt ekki fram fyrr en eftir 6-7 ára aldur þó
svo að aukahljóð á hjarta geti greinst 2-3 árum
fyrr. Einkennin eru m.a. minnkað þol, hósti (næturhósti),
öndunarerfiðleikar vegna lungnabjúgs og jafnvel yfirlið.
Ofþykknun á
hjartavöðva (hypertrophic cardiomyopathy) er algengasti
hjartasjúkdómurinn hjá köttum. Um er að
ræða arfgengan sjúkdóm sem finnst bæði
í húsköttum og hreinræktuðum köttum
eins og persum og Maine Coon. Einkenni eru afar breytileg en öndunarörðugleikar
koma yfirleitt fram. Þverrandi þol er erfitt að greina
hjá köttum. Blóðtappar geta myndast og valdið
lömun, sérstaklega á afturfótum.
Hjartavöðvaslen
(dilated cardiomyopathy) sést helst hjá stórum
hundategundum eins og stóra Dana, írskum úlfhundi,
doberman og boxer (einnig hjá cocker spaniel). Í þessum
tilfellum þynnist hjartavöðvinn og nær ekki að
dragast saman að fullu og getur því ekki pumpað
blóðinu um líkamann sem skyldi. Einkenni koma oftast
fram þegar hundurinn er miðaldra en þau eru m.a. öndunarerfiðleikar,
hósti, minnkað þol og þyngdartap. Þessi
sjúkdómur getur einnig valdið skyndidauða.
Meðhöndlun á
hjartasjúkdómum felst í flestum tilfellum í
að minnka lungnabjúg og síðan að auka starfsgetu
hjartans. Óraunhæft er að reikna með bata en einkenni
eru meðhöndluð og lífsgæði dýrsins
þar með aukin. Mikilvægast er þó að
taka hjartasjúkdóma með í reikninginn í
ræktunarstarfi og rækta ekki undan dýrum sem vitað
er að hafi hjartasjúkdóm.
|