Fróðleikur um dýr og dýrasjúkdóma

Bóluefni fyrir hunda - Recombitek C4

Í júní 2008 var nýtt bóluefni, Recombitek C4, tekið í notkun á Íslandi.

Það veitir vörn gegn eftirfarandi sjúkdómum:

1) smáveirusótt, 2) smitandi lifrarbólgu, 3) hótelhósta og 4) hundafári

Mælt er með að hundar séu bólusettir tvisvar til þrisvar með 2ja til 3ja vikna millibili (grunnbólusetning), aftur ári seinna og svo á tveggja ára fresti.

Smáveirusótt er meðal algengustu veirusjúkdóma í hundum í heiminum og getur hún verið lífshættuleg. Veiran (hunda-parvóveira) leggst á meltingarfærin og algengustu einkenni eru uppköst og niðurgangur, gjarnan blóðugur og í kjölfarið fylgir ofþornun. Hvolpar og ungir hundar eru í mestri hættu en fullorðnir hundar fá yfirleitt vægari sjúkdómseinkenni. Smáveirusótt greindist fyrst á Íslandi árið 1992 og allar götur síðan hafa íslenskir hundar verið bólusettir gegn sjúkdómnum.

Smitandi lifrarbólga í hundum orsakast af hunda-adenóveiru (teg. 1) og veldur mismunandi einkennum, frá vægum veikindum upp í mjög alvarleg. Í alvarlegustu tilfellunum getur veiran dregið hundinn til dauða á innan við sólarhring. Helstu einkenni eru hálsbólga, hiti, lystarleysi, niðurgangur, uppköst, eymsli í kvið og slappleiki. Talið er að þessi sjúkdómur hafi fyrst borist til Íslands um 1980 en aldrei hefur verið um eiginlegan faraldur að ræða. Bólusetning gegn lifrarbólgu hér á landi hófst árið 1996 en árið 2003 var framleiðslu bóluefnisins hætt og síðan þá hefur lifrarbólgan valdið töluverðum usla hér. Vonandi verður notkun Recombitek C4 til þess að lifrarbólgutilfellum fækkar til muna.

Svonefndur hótelhósti er sýking í efri öndunarfærum hunda sem orsakast af nokkrum mismunandi veirum og bakteríum. Af veirunum hefur hunda-parainflúensuveiran þar einna mest að segja en einnig hunda-adenóveira (teg. 2) (Recombitek C4 veitir vörn gegn þessum veirum). Um er að ræða bráðsmitandi sýkingu sem berst hratt á milli hunda t.d. á hundahótelum (þaðan dregur sjúkdómurinn nafnið). Algengustu einkenni eru þurr hósti en lystarleysi, hiti og depurð er oft til staðar. Flestir hundar ná sér eftir 2-4 vikur en ungir hundar og gamlir og/eða ónæmisbældir geta fengið alvarlegri einkenni. Hótelhósti hefur verið staðfestur á Íslandi en lítið er vitað um útbreiðslu sjúkdómsins hér.

Hundafár (canine distemper) orsakast af paramyxóveiru (skylt mislingum). Hundafár er mjög alvarlegur sjúkdómur sem smitast hratt á meðal óbólusettra hunda. Algengustu einkennin eru útferð úr augum og nefi, hósti, uppköst, niðurgangur og krampaköst. Margir þeirra sem lifa sjúkdólminn af hljóta varanlegan skaða á sjón og taugakerfi og einnig tönnum. Heimildir eru um að hundafár hafi geisað á Íslandi á seinni hluta 19. aldar en síðasti faraldurinn var árið 1966. Allir innfluttir hundar verða að vera bólusettir gegn hundafári (auk fleiri sjúkdóma) þar sem íslenski hundastofninn er sérstaklega viðkvæmur fyrir þeim sjúkdómi.

Hrund Hólm júní 2008