Fróðleikur
um dýr og dýrasjúkdóma
 |
Spóluormar
í hundum og köttum |
Iðraormar í
hundum og köttum eru algeng sníkjudýr sem geta valdið
hýslum sínum töluverðum óþægindum.
Spóluormar eru þeirra algengastir og verður fjallað
um þá hér.
Einkenni
og smitleiðir
Einkenni spóluormasmits hjá hundum og köttum eru
m.a. niðurgangur og/eða uppköst, hósti, þaninn
kviður og mattur feldur. Einkenni eru jafnan alvarlegri hjá
hvolpum og kettlingum en hjá fullorðnum dýrum sem
geta verið full af ormum en nánast einkennalaus.
Smit getur borist
með fleiri en einum hætti í dýrin. Egg berast
út með saur og þroskast í umhverfinu og verða
smithæf en þau geta verið mjög lífseig og
lifað í mánuði og jafnvel ár við góð
skilyrði. Dýrin geta fengið í sig egg við
að hnusa og róta í jarðvegi. Hundar og kettir
geta einnig smitast við að éta svokallaða millihýsla,
ýmis smádýr eins og fugla og mýs sem eru
smituð. Síðast en ekki síst getur smit (lirfur)
borist í fóstur í gegnum fylgju hjá hvolpafullri
tík eða í hvolpa og kettlinga með móðurmjólkinni.
Þessi síðastnefnda smitleið er mjög mikilvæg
og veldur því að hvolpar og kettlingar eru oft illa
haldnir af ormasýkingu.
Þegar dýrin
hafa innbyrgt eggin, klekjast þau og lirfurnar þroskast
í meltingarveginum og berast svo með blóðinu um
líkamann og til lungnanna. Þaðan er þeim hóstað
upp og kyngt á ný ofan í maga þar sem þroskaferlið
heldur áfram. Fullorðnir ormar í meltingarveginum
senda svo frá sér egg sem berast út með saurnum.
Sumar lirfur leggjast í dvala í vefjum líkamans
og vakna seinna, t.d. við meðgöngu og flakka yfir í
fóstur eða mjólkurkirtla.
Meðhöndlun
/ fyrirbygging
Alla hunda og ketti skal ormahreinsa árlega (um þetta er
kveðið á í reglugerð um hollustuhætti).
Auk þess er ráðlagt að gefa hvolpum ormalyf við
2ja, 4ra, 6 og 8 vikna aldur og kettlingum við 3ja, 5, 7 og 9 vikna
aldur. Hvolpafullar tíkur og kettlingafullar læður
er æskilegt að ormahreinsa á síðasta hluta
meðgöngu til að minnka líkur á að hugsanlegt
smit berist í afkvæmin. Fleiri en ein tegund ormalyfja
eru til og mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um notkun
lyfsins svo að það beri tilætlaðan árangur.
Smit í
fólk
Spóluormar geta borist úr hundum og köttum í
fólk og valdið sjúkdómi. Í mestri hættu
eru börn sem komast í návígi við saurmengaðan
sand og jarðveg og geta með þeim hætti fengið
í sig egg. Lirfurnar geta síðan farið á
flakk í líkamanum og valdið skaða í líffærum.
Það er því afar mikilvægt að hylja
sandkassa og venja sig á að þvo hendur vel eftir garðvinnu.
|