Fróðleikur
um dýr og dýrasjúkdóma
 |
Tennur
og tannhirða |
Sjúkdómar í
tönnum og munni er algeng ástæða þess að
komið sé með dýr til dýralæknis.
Meðhöndlun er möguleg í mörgum tilfellum en
forvarnir eru alltaf besti kosturinn.
Hvolpar og kettlingar fæðast
tannlausir. Mjólkurtennurnar koma upp þegar þeir
eru 3-6 vikna gamlir og tannskipti verða við 3-7 mánaða
aldur (þetta gerist nokkru fyrr hjá köttum en hundum).
Fullorðnir hundar hafa 42 tennur en fullorðnir kettir 30 tennur.
Sérstaklega hjá smáhundum kemur það fyrir
að tannskipti ganga ekki eðlilega fyrir sig og þeir fella
ekki mjólkurtennurnar þrátt fyrir að fullorðinstennurnar
komi upp. Þetta á einkum við um framtennur og vígtennur
í efri góm. Hafi mjólkurtennurnar ekki losnað
við 7-8 mánaða aldur er nauðsynlegt að láta
taka þær, annars verða þær til vandræða.
Rannsóknir hafa sýnt
að allt að 70% fullorðinna hunda og katta þjást
af einhvers konar tannsjúkdómum. Tannskemmdir eins og
þekkjast hjá fólki er ekki algengt vandamál
hjá gæludýrum en hins vegar er tannsteinsmyndun
og tannholdsbólga afar algengt vandamál sem getur leitt
til alvarlegra skemmda á tönnum, tannholdi og jafnvel kjálkabeini
sé ekkert að gert. Tannsteinn myndast af matarleifum og bakteríum
sem safnast upp í kringum tennurnar. Það veldur ertingu
á tannholdinu sem verður rautt og bólgið. Sé
tannsteinninn ekki fjarlægður safnast hann upp undir tannholdinu
sem smám saman eyðist. Einkenni slíkrar tannholdsbólgu
eru m.a. viðvarandi andremma, blæðing úr tannholdi,
lausar tennur og léleg matarlyst. Algengara er að hundar
af litlum tegundum eigi við tannvandamál að stríða
en stórir hundar. Ástæðan er í raun plássleysi
í munninum á þeim. Fullorðnir kettir sem fá
eingöngu blautfóður eru oft með ansi mikinn tannstein.
Mikilvægt er að
eigendur skoði reglulega upp í kjaftinn á hundum og
köttum og fylgist með ástandi tanna og tannholds. Með
þessu móti venst dýrið líka tannskoðun
sem er hluti af heilbrigðisskoðun hjá dýralækni.
Nokkur ráð eru til að halda tönnunum hreinum. Ýmis
nagbein (þetta á ekki við um ketti) eru gagnleg í
þessu tilliti og því lengur sem það tekur
hundinn að naga það, því betra. Þurrfóður
er betra fyrir tennurnar en blautfóður og sumar tegundir
þurrfóðurs innihalda auk þess sérstök
efnasambönd sem draga úr tannsteinsmyndun. Tannburstun er
þó besta leiðin til að fyrirbyggja tannvandamál.
Auðvitað er nauðsynlegt að hundurinn eða kötturinn
leyfi eigandanum yfirleitt að eiga við tennurnar og fara ber
að öllu með gát. Til eru sérstakir tannburstar
fyrir dýr en mjúkir barnatannburstar eru góðir
til að byrja með. Ekki er þörf á að nota
tannkrem. Gott er að byrja á einni tönn og þegar
hundurinn eða kötturinn er farinn að venjast burstuninni
eru fleiri tennur teknar.
Sé tannsteinn þegar
farinn að safnast upp er hægt að láta fjarlægja
hann. Það er gert í deyfingu eða svæfingu
með tæki sem myndar hátíðnihljóðbylgjur
sem brjóta upp steininn. Tennur sem eru illa farnar eru fjarlægðar.
Oft er dýrið svo sett á sýklalyfjakúr
í framhaldi af tannhreinsun. Hafið í huga að illa
farnar tennur og sýkt tannhold getur valdið hundum og köttum
mjög miklum óþægindum og orsakað alvarleg
heilsufarsleg vandamál. Kíkið uppí munninn
á heimilisdýrinu strax í dag (en gætið
þess þó að verða ekki bitin!).
|