Fróðleikur um dýr og dýrasjúkdóma

Útflutningur hunda og katta til Evrópu og Bandaríkjanna

Þegar fjölskyldur flytjast búferlum til útlanda fylgja gæludýrin oft með. Nauðsynlegt er að huga að undirbúningi vel í tíma þar sem gerðar eru strangar kröfur um flutning gæludýra á milli landa.

ÚTFLUTNINGUR HUNDA OG KATTA TIL EVRÓPU

Áður en hundar og kettir eru fluttir til Evrópu þarf að bólusetja þá gegn hundaæði. Hundaæði finnst ekki á Íslandi og því er ekki leyfilegt að bólusetja gegn sjúkdómnum nema að fenginni undanþágu. Dýralæknirinn þarf því að sækja um heimild hjá Matvælastofnun (yfirdýralækni) til að kaupa bóluefni fyrir hvert og eitt dýr. Dýrið þarf að vera örmerkt áður en bóluefni er pantað.

Einangrun eftir bólusetningu
Í 4 vikur eftir bólusetningu gegn hundaæði skal halda dýrum einangruðum eins og kostur er (ekki fara með þau á hótel eða hundasvæði og ketti skal loka inni). Fjarlægja skal saur og annan úrgang. Ef dýrið bítur (dýr eða manneskju) skal tilkynna það til dýralæknis/læknis.

Noregur og Svíþjóð – 4,5 mánaða bið!
Dýr sem fara til Noregs eða Svíþjóðar þurfa að fara í blóðprufu þar sem mótefni gegn hundaæði eru mæld (staðfesting á að bólusetning hafi skilað árangri). En ekki má taka blóðprufuna fyrr en 4 mánuðum eftir bólusetningu. Blóðprufan er send utan, yfirleitt til Danmerkur og niðurstaða liggur fyrir innan tveggja vikna. Mótefni verða að mælast jafnt og eða yfir 0,5 einingar / ml. Ef gildið er lægra þá þarf að endurtaka bólusetninguna (það er sjaldgæft).

Bretland og Írland – 7 mánaða bið!
Hundar og kettir sem fara til Bretlands þurfa einnig mótefnamælingu. Í þeim tilfellum má þó taka blóðprufuna 1 mánuði eftir bólusetningu og ef mótefni mælast nægilega há má flytja dýrið inn í landið 6 mánuðum eftir að blóðprufan var tekin.

Færeyjar
Færeyingar gera eftirfarandi kröfur: hundar þurfa að vera örmerktir og bólusettir gegn hundaæði, hundafári, smitandi lifrarbólgu, smáveirusótt og hótelhósta auk leptospirósu; kettir þurfa að vera örmerktir og bólusettir gegn hundaæði, kattafári, kattaflensu og kattakvefi. Ekki má líða lengri tími frá bólusetningum en eitt ár og ekki skemmri en einn mánuður. Þ.e. ef útflutningur er áætlaður í júní 2011 þá verður dýrið að hafa verið bólusett á tímabilinu júní 2010 til maí 2011.

Önnur Evrópulönd (þ.m.t. Danmörk)
Þau dýr sem fara til annarra Evrópulanda má flytja út 3 vikum eftir bólusetningu.

Ormahreinsun og útflutningsvottorð – gildir um öll dýr / öll lönd
Nokkrum dögum (hámark 10 dögum) fyrir útflutning þarf að koma með dýrið í skoðun þar sem því er gefið ormalyf og svo er útbúið útflutningsvottorð sem þarf að fylgja dýrinu í flutningnum. Vottorðið sjálft er útbúið af dýralækni stofunnar en svo þarf opinber dýralæknir (á vegum Matvælastofnunar) að stimpla vottorðið.

Ferlið er því eftirfarandi:

1) Láta örmerkja hundinn/köttinn ef það er ekki þegar búið.
2) Panta hundaæðisbóluefni (Dýralæknastofan sér um það)
3) Fá tíma í bólusetningu (við fáum bóluefnið yfirleitt innan fárra daga)
4) Ef mótefnamæling er nauðsynleg þá skal panta tíma í blóðprufu þegar tími er kominn til þess. Svo er haft samband við eiganda þegar niðurstaða berst.
5) Þegar styttist í brottför þarf að fá tíma í ormahreinsun og útflutningsvottorð, nokkrum dögum fyrir útflutning, mest 10 dögum.

ÚTFLUTNINGUR HUNDA OG KATTA TIL BANDARÍKJANNA

Flest ríki Bandaríkjanna gera kröfu um hundaæðisbólusetningu. Almenna reglan er sú að dýrin mega fara inn í landið 3 vikum eftir bólusetningu. Þau þurfa einnig að vera örmerkt og ormahreinsuð og hafa útflutningsvottorð.

 

Hrund Hólm dýralæknir
10. nóvember 2010