|
|
|
||||
Velkomin á vefinn okkar 18. júní 2008 Nýja bóluefnið loksins komið! Nú er bóluefnið fyrir hunda sem beðið hefur verið eftir, loksins komið í sölu hér á landi. Þetta bóluefni veitir vörn gegn smáveirusótt (parvo), smitandi lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári. Bólusetja þarf tvisvar með 2ja til 3ja vikna millibili (grunnbólusetning) og síðan árlega til að viðhalda ónæmi. Hvolpa yngri en 12 vikna skal bólusetja með 2-3ja vikna millibili og síðasti skammturinn gefinn við eða yfir 12 vikna aldur. Sjá nánar hér.
Maí 2008 Nýjar vörur EFA olía - Fóðurbætiefni fyrir hunda og ketti, úðað yfir matinn. Inniheldur hátt hlutfall lífsnauðsynlegra ómettaðra fitusýra og kemur í veg fyrir þurra húð og mattan feld. Dregur úr hárlosi. Nánari upplýsingar um EFA Prescription (pdf) VetiCare - VetiCare er fyrir dýr með viðkvæma liði (liðaskemmdir) og dýr í mikilli þjálfun, svo og eldri dýr. Nánari upplýsingar um VetiCare (pdf) PetzLife tannhreinsiefni - Við höfum haft tannhreinsiefnin frá PetzLife til sölu nú um nokkurra vikna skeið. Gelið eða úðinn er borið á tennurnar og ekki þarf að nota tannbursta. Um er að ræða náttúruleg efni sem koma í veg fyrir tannsteinsmyndun og draga úr bakteríum sem annars geta valdið skaða á tannholdi og tönnum. Sé mikill tannsteinn er æskilegt að byrja á því að koma með hundinn eða köttinn í tannhreinsun og byrja svo að nota tannhreisniefnið reglulega. Sé lítill tannsteinn er hægt að eyða honum með daglegri notkun tannhreinsiefnanna á nokkrum vikum. Nánari upplýsingar um PetzLife tannhreinsiefni.
Afgreiðslutími dýralæknastofunnar:
Ekki þarf að panta tíma fyrir heilbrigðisskoðun, bólusetningar og fleira (koma milli kl. 12 og 16) Panta þarf tíma fyrir aðgerðir í síma 421 0042. Vegna neyðartilfella utan opnunartíma bendum við á dýralæknastofur og dýraspítala á höfuðborgarsvæðinu sem bjóða upp á slíka þjónustu. Sem stendur getur Dýralæknastofa Suðurnesja ekki boðið upp á neyðarþjónustu allan sólarhringinn.
|
|
||||