Á Dýralæknastofu Suðurnesja er m.a. boðið upp á eftirfarandi þjónustu:

  • Almennar heilbrigðisskoðanir
  • Bólusetningar og ormahreinsanir
  • Örmerkingar
  • Heilbrigðisvottorð (vegna útflutnings, trygginga o.fl.)
  • Almennar skurðaðgerðir
  • Röntgenmyndatöku
  • Ómskoðun (sónar)
  • Rannsóknir á blóðsýnum (prótein, ensím og blóðtalning)
  • Ýmsar sýnatökur (vegna sýkinga, æxla eða annarra breytinga)
  • Tannhreinsun (með hljóðbylgjum)
  • Eyrnaskolun (með eyrnaskolunartæki)
  • Fóðursölu

Tækjabúnaður

 

GE Logiqbook ómskoðunartæki

Gierth
röntgenmyndavél

 

VetScan
blóðgreiningartæki

ABC
blóðtalningartæki

 


AuriFlush eyrnaskolunartæki

Amdent tannhreinsitæki

 

Fóðursala

Dýralæknastofan er umboðsaðili fyrir Eukanuba gæludýrafóður og er auk þess með sjúkrafóður frá Hill's og Royal Canin.

Eukanuba hundafóður er sérhannað fyrir hundategundir af mismunandi stærð (smáhunda, miðlungsstóra hunda og stóra hunda) og fyrir mismunandi aldursskeið (hvolpa, fullorðna hunda, 7-10 ára og eldri hunda).

Eukanuba kattafóður er fyrir ketti á mismunandi aldursskeiði (kettlinga, fullorðna, 7-10 ára og eldri ketti).
Auk þess er mikið úrval af sjúkrafóðri bæði fyrir hunda og ketti sem eigendum er ráðlagt að nota í ákveðnum tilfellum, til dæmis vegna ofnæmis, meltingartruflana og þvagfærasjúkdóma. Einnig má nefna fóður fyrir dýr sem þurfa að léttast.

Eukanuba gæludýrafóður er eingöngu framleitt úr hágæða hráefni. Megininnihaldsefni flestra fóðurtegundanna er kjúklingakjöt en einnig er fáanlegt heilfóður fyrir hunda og ketti sem inniheldur aðrar kjöttegundir.

Sækja bækling um Eukanuba gæludýrafóður.