Dýralæknastofa Suðurnesja var stofnuð í byrjun árs 2004 af dýralæknunum Hrund Hólm og Gísla Sverri Halldórssyni. Smám saman hefur verið fjárfest í nauðsynlegum tækjabúnaði og erum við nú í stakk búin til að framkvæma flestar skoðanir og rannsóknir sem þörf er á. Sjá nánar um þjónustu sem er í boði hér.

Fyrirspurnir er hægt að senda til dyralaeknastofa (hjá) simnet.is

Starfsfólk

Hrund Hólm

  • Útskrifaðist frá Norges Veterinærhögskole (Dýralæknaháskóla Noregs í Ósló) árið 2001.
  • Gerði lokaverkefni um algengi sjúkdómanna FIV og FeLV í köttum á Íslandi.
  • Starfaði hjá yfirdýralækni frá nóvember 2001 til ársloka 2005 þar sem hún sá um innflutningsmál gæludýra ásamt fleiru.
  • Stundaði afleysingar í fríum á árunum 2001-2004 bæði í einkageiranum og hinum opinbera.
  • Hefur sótt ýmis námskeið á vegum Dýralæknafélags Íslands. Auk þeirra má nefna námskeið við Royal Veterinary College í London sumarið 2006: Online Logical Clinical Problem Solving; námskeið í ómskoðun hunda og katta á vegum E-vet í Haderslev í Danmörku 7. og 8. september 2006. Þá má nefna námskeið í sjúkdómum búrfugla á vegum Animalia ehf. 1.-4. mars 2008.

Gísli Sverrir Halldórsson

  • Útskrifaðist frá Den Kongelige Veterinær- og Landbohöjskole í Danmörku árið 1982
  • Héraðsdýralæknir á Hofsósi 1983-1994
  • Starfaði við almennar dýralækningar í Sand í Noregi 1994-1999
  • Starfaði sem dýralæknir inn- og útflutningseftirlits búfjárafurða hjá yfirdýralækni frá 1999 til ársloka 2005.
  • Framkvæmdastjóri Vetis frá mars 2006.

Kristbjörg Ásta Jónsdóttir

  • Kristbjörg sér um allt sem dýralæknarnir gera ekki. Hún er í afgreiðslunni og aðstoðar eftir þörfum.